Stofnfundur NPA miðstöðvar svf 16. júní 2010

Stofnfundur NPA miðstöðvarinnar svf, samvinnufélag, fór fram16. júní 2010. Sjá nánar stað, stund, dagskrá o.fl. á vefsíðu miðstöðvarinnar www.npa.is. Á fundinn mættu rúmlega 40 manns og gerðust 33 stofnfélagar NPA miðstöðvarinnar svf.

Aðalfundur SSL 14. júní 2010 - félaginu slitið

Kæri félagsmaður!

Fyrsti og síðasti aðalfundur Samtakanna um sjálfstætt líf, SSL, var haldinn mánudaginn 14. júní 2010 kl. 20:00. Fundurinn fór fram í Rauða salnum í Sjálfsbjargarhúsinu að Hátúni 12.  Á fundinum var félaginu slitið. Í viðhengjum með þessari færslu eru: Aðalfundarboð og dagskrá. Lagabreytingatillögur (tvö skjöl). Skýrsla stjórnar SSL. Ársreikningur 2009. Tillaga um að slíta félaginu. Fundargerð aðalfundarins.  


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Kynningarfundur um stofnun NPA miðstöðvarinnar 5. júní 2010

Núna fer að líða að stofnun samvinnufyrirtæksins um notendastýrða persónulega aðstoð. Sjá má nánari upplýsingar um kynningarfundinn og dagskrá hans á vefnum www.npa.is

ENIL á Alþjóðadegi til minningar um Helförina 27. janúar 2010

Fréttatilkynning frá ENIL, European Network on Independent Living, www.enil.eu: ENIL, Evrópusamtök um Sjálfstætt líf minnast Alþjóðadags til minningar um Helförina 2010. ENIL krefst þess að niðurlægjandi meðferð á fötluðu fólki taki enda og lokunar á búsetustofnunum í Evrópu þar sem fatlað fólk býr.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

SSL - Samtök um sjálfstætt líf

Samtök um sjálfstætt líf, SSL, (e. Independent Living movement) voru stofnuð hér á landi á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2009 af hópi fatlaðs fólks, en Sjálfsbjörg, ÖBÍ og Þroskahjálp hafa stutt við framtakið ásamt starfsfólki í fötlunarfræðinni við Háskóla Íslands. Stofnfundurinn var haldinn á Hótel Borg við Austurvöll þar sem samþykkt voru lög félagsins og kosin stjórn. Að stofnfundi loknum var heilsað upp á afmælisbarnið Jón Sigurðsson; styttuna á Austurvelli. Markmið félagsins er að valdefla og styðja fatlaða einstaklinga samkvæmt hugmyndafræði um sjálfstætt líf, efla lífsgæði fatlaðs fólks, vinna að rétti einstaklingsins til að hafa stjórn á eigin lífi er aðrir samfélagsþegnar taka sem gefnu. Félagið á að gæta réttar einstaklingsins til fullrar þátttöku og jafnræðis í samfélaginu, að hafa stjórn á eigin aðstoð og þar með sínu lífi. Félagið er hluti af hinni alþjóðlegu Independent Living hreyfingu, alþjóðlegri borgarahreyfingu fólks með fötlun. Í stjórn SSL eru: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, formaður, Aileen Svensdóttir, ritari, Ásdís Jenna Ástráðsdóttir, gjaldkeri, Andri Valgeirsson, meðstjórnandi, Arnór Karlsson, meðstjórnandi.

Sjá greinina alla í skránni hér neðar, Sjálfstætt líf - Frelsi fyrir fatlað fólk, þar sem m.a. koma fram kröfur ENIL, Evrópusamtaka Independent Living, til Evrópuþingsins í Strassborg í Frakklandi. Lög SSL eru hér neðar einnig og umsóknareyðublað vegna inngöngu í SSL.

SSL fékk aðild að ENIL, European Network on Independent Living, þann 2. október 2009.

Tölvupóstfang: sjalfstaettlif@simnet.is

3. desember 2009, alþjóðadagur fatlaðs fólks, ráðstefna:
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) - Sjálfstætt líf, tálsýn eða veruleiki?
Sjá dagskrá stað og stund hér . . .


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Ýmsir tenglar á vefsíður um NPA og Independent Living

Íslenskar:

Evrópa:

Danskar:

Sænskar:

Norskar:

Bandarískar:

  • http://www.siswebsite.org/ Heimasiða SIS þjónustumatskerfið, sem taka á upp á Íslandi til að meta þjónustuþörf fatlaðra.
  • http://www.aaidd.org/  Samtökin að baki SIS matinu: American Association on Intellectual and Developmental Disabilities (AAIDD)
  • http://bancroft.berkeley.edu/collections/drilm/ Mjög góðar upplýsingar um Independent Living hreyfinguna, upphaf og fleira, er að finna á þessum vef Californíuháskóla í Berkeley þar sem hreyfingin byrjaði.
  • http://www.dralegal.org/  DRA, Disability Rights Advocates, is a non-profit law firm dedicated to securing the civil rights of people with disabilities. DRA advocates for disability rights through high-impact litigation, as well as research and education. We do not charge our clients for our services
  • http://www.cilberkeley.org/
  • http://www.pascenter.org Miðstöð um persónulega aðsotðarmenn, PAS, Center for Persona Assistance Services. Mikið af áhugaverðum upplýsingum, sem meðal annars fjalla um hagnýt atriði varðandi það að hafa persónulega aðstoðarmenn í vinnu. Þetta Center gefur líka út rafrænt fréttabréf sem hægt er að verða áskrifandi að og fá sent á netfangið sitt, að kostnaðarlausu.

Breskar:

Írskar:

Alþjóðlegar:


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hvað er notendastýrð persónuleg aðstoð, NPA?

Frelsi fatlaðs fólks og ábyrgð á eigin lífi notendastýrð persónuleg aðstoð (enska: personal assistance).

NPA er félagsþjónusta sem ætlað er að uppfylla þarfir fatlaðs fólks fyrir aðstoð heima og úti í samfélaginu og njóta þannig þess frelsis í daglegu lífi er ófatlað fólk tekur sem gefnu. Rétturinn til aðstoðarinnar á sér stoð í meginmarkmiðum Stjórnarskrár Íslands og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun. Markmiðið með NPA er að fólk með líkamlegar eða andlegar skerðingar og þörf fyrir aðstoð hafi möguleika á að lifa sjálfstæðu og virku lífi. NPA þjónusta hefur ekki verið innleidd á Íslandi, en er þó veitt nokkrum einstaklingum á takmarkaðan hátt og í flestum tilvikum sem tilraunaverkefni. Á Norðurlöndum er þessi þjónusta við lýði og á sér lengsta sögu í Svíþjóð eða allt frá árinu 1993. Sjá nánar í skrá hér að neðan um NPA og samanburð við stofnanastýrða þjónustu.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband